Færsluflokkur: Íþróttir

Ekki við öðru að búast..

en að við héldum toppsætinu,og bætum svo um betur þann sautjánda.En ég verð bara að segja alveg eins og er(mín skoðun)að mér fannst Hamrarnir betri í þessum leik,og hefði kanski ekkert verið ósanngjarnt að þeiru tæku öll stigin,að minsta kosti eitt.En svona er fótboltinn,betra liðið getur oft tapað.Mér fannst afskapleg deyfð yfir mínum mönnum,lítill hraði,og sigling svona á rólegu nótunum.En frábært mark og einstaklings framtak hjá Giggsaranum,og það með hægri.
mbl.is Man. Utd aftur á toppinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorgerður..

þú og þínir flokksfélagar ættuð nú að líta ykkur nær.Köstuðuð þið ekki Sturlu úr ráðherrastólnum,og mæltuð svo með honum sem þingforseta,til að friða ykkar samvisku.Ég held að þú og flokksfélagar þínir verðið að fara að sætta ykkur við það,að þið eruð nú komin í stjórnarandstöðu a.m.k. næstu 80 daga,og vonandi verður þjóðin það vitiborin að sjá til þess að þið verði það einnig eftir næstu kosningar.
mbl.is Gagnrýna forsetaskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jahá

Þetta eru bara eðlileg viðskipti í knattspyrnuheiminum í dag(þó að mér finnist þau afskapleg óeðlileg viðskipti)það er að segja ,að það er boðið í, og keyptir leikmenn fyrir himinháar upphæðir(alltof háar)og svo eru þeir seldir aftur eftir örfáa mánuði með 20-30%halla.Og þetta með keane hlýtur að slá öll met,seldur aftur til fyrra félags eftir 6 mánuði með 25% halla.Já hann er einkennilegur knattspyrnubysnisinn í dag.Shocking
mbl.is Keane aftur til Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonaðist eftir jafntefli

en svo fór ekki,púllarar skora á síðustu minútum,og svo annað í uppbótartíma.Sá ekki allan leikinn,en miðað við tölfræðina þá hefur þetta verið sanngjarn sigur púllara,15 skot á rammann gegn 1 er þetta Chelsea lið komið algjörlega á rassgatið,en mér er svo sem nákvæmlega sama um það.En svona að lokum þá langar mig að benda púllurum á að þeir hafi varla efni á að tala um að Ronaldo sé dýfari,því að þið eigið einn sem margoft er búið að benda ykkur á,en þið aldrei viðurkennt,og hann ber fyrirliðabandið.Góðar stundir.
mbl.is Torres tryggði Liverpool sigur á Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vælukjóar

Það liggur við að maður vorkenni þeim þessum aumingjans vælukjóum þeim Scola og Bensa.Ef að Scoli hefur séð fimm möguleika sem lið hans hefði átt að fá vítaspyrnuGetLost ja hvað ætli Ferguson hafi þá séð marga möguleika?Svo spyr maður sig líka hvort að þetta sé beiðni frá Scola til dómarana,um að þeir fari nú að gefa sér vítaspyrnur,kanski hann sé að biðla til þeirra núna fyrir leikinn á morgun,ja það skyldi aldrei vera.Það er líka einkennilegt við það,að um leið og Utd náði efsta sætinu,þá byrja þessir tveir stjórar ásamt Wenger að væla,og væla um það að Ferguson hafi áhrif á dómarana,en héldu kjafti fram að því.Ég held þeir ættu frekar að nota helvítis þverrifuna á sér til að skammast í sínum liðum,en ekki að agnúast út í Ferguson og hans lið,þessir suðrænu vælukjóar.Þeim ætti að vera það ljóst að Ferguson er einn besti stjóri sem uppi hefur verið,og stýrir besta liði heims í dag.Góðar stundir.
mbl.is Tekur undir með Benitez
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andsk.....

Þetta er ekkert betra en var hjá West Ham,þeir hrynja niður í meiðslum leikmennirnir,og má nú liðið síst við því núna,ef á að halda efsta sætinu áfram.
mbl.is Rooney mætir ekki gömlu félögunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært

Já frábær sigur hjá mínum mönnum,og sanngjarn,og stórkostlegur leikur hjá þeim.En svo er það spurning með þennan dómara,hvort hann sé bókstaflega hæfur til þess að dæma í þessari deild.Rauða spjaldið er svona spurningarmerki,hvort ekki hafi verið sanngjarnara gult?En Höddi,sem náttúrlega allt veit um fótbolta taldi þetta vera rautt.En svona yfir heildina fannst mér spjöldin óþarflega mörg.Svo verður maður náttúrlega að minnast á metið,en þetta er ellefti leikurinn sem að Van Der Saar heldur hreinu,og vonandi að svo verði áfram.
mbl.is Man Utd burstaði WBA, 5:0, og setti met - Heiðar skoraði tvö fyrir QPR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðinlegur

Já mér fannst hann hálf leiðinlegur þessi leikur.Það mátti að vísu horfa á fyrri hálfleik,en sá seinn var arfa slakur,og afskaplega lítið fyrir augað.En mínir menn áfram,gott ,mál það.
mbl.is Man. Utd áfram eftir sigur á Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrst maður svo bolti.

Þetta kemur upp í huga manns,þegar að neðri deildar lið eru að leika við þau stærri.Þ.e.a.s að leikmenn þeirra hugsi fyrst um að tækla manninn,en síðan kemur boltinn.
mbl.is Sex meiddust hjá Man.Utd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vona....

að svo verði ekki,og mínir menn verði áfram á toppnum,hef hugboð um að þetta verði eitt af 0-0 leikunum hjá púllurum.
mbl.is Endurheimtir Liverpool toppsætið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hjörtur Herbertsson
Hjörtur Herbertsson
Áhugamaður um knattspyrnu og formúlu

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband