Það var bara...

sjálfgefið að hann fengi að bera fyrirliðabandið í sínum síðasta deildarleik, því miður að það skuli vera síðasti leikurinn hjá þessum frábæra markmanni. Hefði alveg viljað sjá hann í marki Utd manna eina til tvær leiktíðar enn, hann hefði alveg staðið það af sér með sóma, þó fertugur sé. Takk fyrir 6 frábæru árin þín  Van der Sar, það verður eflaust erfitt að fá janfgóðan markmann sem eftirmann þinn.
mbl.is Van der Sar með fyrirliðabandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það ætla ég svo.....

sannarlega að vona að þið farið ekki að klúðra því að ná allavega einu stigi af þessum sex mögulegum, sem eftir eru. En það er fyrirfram vitað að þarna verða eflaust erfiðir leikir, þar sem þessi tvö lið sem eftir er að spila við eru að berjast við falldrauginn. En gott væri ef þetta stig næðist í næsta leik, þá er góður tími til að búa sig undir leikinn við Barcelona, og koma arfavitlausir í þann leik og standa uppi sem sigurvegarar.Joyful
mbl.is Ferguson: Við klúðrum þessu ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkuð til í...

þessu hjá kallinum, þar sem Utd er að berjast á þremur vígstöðum þ.e. deild, bikar og meistaradeild, en Arsenal aðeins í deildini. Þannig að það má segja að Arsenal sé eiginlega í bílstjórasætinu, en svo framarlega sem mínir menn fara ekki að hrynja meir niður í meiðslum, þá vonandi standast þeir pliktina og hampa dolluni í vor.
mbl.is Redknapp: Arsenal er í dauðafæri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ara Edwald forstjóra....

365 er ekki skemmt. Það get ég sagt þér Ari Edwald að okkur áhugasömum um íþróttir er heldur ekki skemmt, ef þið ætlið að reyna að sölsa undir ykkur allt íþróttaefni til að hafa það á læstri stöð. Ef ykkur er að takast þetta sem hér að framan greinir, þá tel ég að ráðherra íþróttamála verði að fara að grípa hér snarlega inn í, og setja lög um að allir landsleikir íslendinga verði í opinni dagskrá, hvort sem það heitir handbolti, fótbolti, eða hvaða íþrótt sem er.
mbl.is RÚV og 365 bítast enn um boltann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jaso.

það eru þá fleiri en Ferguson sem býður við dómgæsluni í ensku úrvalsdeildini. En verður Wenger víttur fyrir þessi ummæli? Það virðist nefnilega ekki meiga segja neitt um þessa blessaða dómara, þá eru stjórarnir sektaðir eða fá á sig bann. Ég held það hafi nú verið pínu rangstöðulykt af þessu marki, og því réttilega dæmt af.
mbl.is Wenger bauð við dómgæslunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jahá..

en hefði hann farið til púllara, þá væri hann ekki einn af heimsins bestu knattspyrnumönnum í dag, en það varð hann einmitt undir stjórn Sir Alex.
mbl.is Liverpool hefði getað keypt Ronaldo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fær nóg að....

gera í vetur, segir Ferguson. Ég ætla svo sannarlega að vona það, vil sjá Owen oftar í byrjunarliðinu, nú svo gleðjast ábyggilega púllarar yfir því að sjá hann oftar á vellinum, eða þannig sko.
mbl.is Owen fær tækifæri gegn Scunthorpe
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins loksins...

eignumst við Akureyringar lið í efstu deild, eftir margra margra ára fjarveru. Já til hamingju þórsarar, og farnist ykkur vel á næsta ári.  
mbl.is Þór í úrvalsdeild - Fjarðabyggð féll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var við...

öðru að búast? Auðvitað ekki þetta er Ferrari, og þeim hefur leifst allt í gegnum tíðina án þess að fá refsingu nema þá fjárhagslega, sem skiptir þá litlu máli. Nú ekki skemmir það svo fyrir þeim að fyrrverandi liðstjóri þeirra er orðinn forseti FIA.
mbl.is Ferrari slapp við aukarefsingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hjörtur Herbertsson
Hjörtur Herbertsson
Áhugamaður um knattspyrnu og formúlu

Færsluflokkar

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband